Baguette veisla
Gæðingurinn Bergur Baguette á gríðarstóran aðdáendahóp í Bretlandi. Loksins ákvað hann eftir milljónir fyrirspurna um að ferðast til Stóra-Bretlands og meta þá baguetta-menningu sem tíðkast þar í landi. Erfitt var að troða þessu inn í le "schedúel" enda er Gæðingurin Bergur ásamt hinum þremur upptekinn þessa dagana við að koma fjármálafyrirtækinu Gæðingurinn Inc. á markaðinn.
Bergur flaug auðvitað með Saga-le"bizznezz" klazz þar sem fluffur og aðrir minnipokamenn reyndu í hvítvetna að fá Berg með sér á eina ljósmynd eða tvær. Auðvitað var Bergur til í að sitja á nokkrum ljósmyndum en þurfti að lokum að klæða sig í dulargervi til þess að komast hjá frekari truflunum. (Bergur er til hægri)
Eftir að Bergur lenti í Bretlandi heimsótti hann fyrst heimsborgina Manchester og smakkaði þar dýrindis baguette sem komst næstum því í topp 10 listann hjá Bergi. Því miður var þetta baguette ekki alveg nógu dýrindis. Daginn eftir fór drengurinn til Liverpool borgar og fékk ekkert baguette þar enda var eini tilgangur þeirrar ferðar að heilsa upp á góðvin Gæðinganna, Rocky Balboa. Það fór vel á með Bergi og Rocky er þeir sátu saman í heiðurstúkunni á Goodison Park og horfðu á Íslendingaliðið Reading gera jafntefli við Everton.
|
Til hamingju Ísland!
Í dag er hátíðisdagur mikill, en í gær (12. jan) datt fyrsti Gæðingurinn á þrítugsaldurinn og verður vegleg veisla haldin honum til höfuðs í kvöld.
Rétt fyrir miðnætti í gær var haldin mikil flugeldasýning, en björgunarsveitirnar styrktu Gæðinganna með öllum afgangsflugeldum frá áramótunum, en fjöldinn var það mikill að flugeldasýningin varði í 7 tíma, en aðdáendur Gæðinganna létu það ekki á sig fá, og þeir sem héldu út allar 7 stundirnar voru boðaðir í ókeypis kaffi og kleinur í félagsheimili Gæðinganna.
Hinn umtalaði Gæðingur er að sjálfsögðu Kristján Cowell, en Cowell viðskeytið er vísun í hina frægi American Idol þætti og þýðir einfaldlega að Kristján lætur ekki bjóða sér upp á neinn skít og hefur hann gengið út af ófáum veitingastöðum sem við höfum heimsótt. Hann er líka einn sá ötulasti við að halda áha
ngendum okkar við efnið með góðum greinum og fréttainnskotum, jafnt á Gæðingasíðuna sem og í Gæðingatíðindin, og þykir vera einn besti penni Norðurlanda.
Í kvöld verður Kristján hylltur af vinum og vandamönnum í pönkaðri afmælisveislu þar sem Gæðingarnir/hans bestu vinir, ásamt Joe-Hannes gestadómara, verða heiðursgestir og drukkið verður langt fram á nótt.
Kristján setur sig ávallt í spor annarra þjóða áður en hann borðar mat frá viðkomandi landi, enda tekur hann vinnu sína mjög alvarlega
|
Fréttabréf
Kæru Aðdáendur,
Afsakið hvað þessi blessaða fréttasíða okkar er óvirk þessa dagana. Við kennum önnum um. Önnu Kournikovu, Önnu Nicole Smith og síðast en ekki síst Önnu Frank. Eftir dramatískar kosningar var ákveðið að taka bæði Harry og Ellert inn í Gæðingahópinn. En þar sem Gæðingarnir geta auðvitað ekki verið fimm var ákveðið að græða heila Harry’s í Ella og sameina þannig það besta úr báðum strákunum. Vonandi mun hegðun Ella batna við þetta. Vegna hinnar mjög svo flóknu aðgerðar sem Ellert og Harry lögðust undir var ákveðið að gefa þeim frí síðasta föstudag. Þá ákváðu hinir Matgæðingarnir ásamt DJ-OE (a.k.a. Jo-Hannes) að kíkja við á Indókína. Sú máltíð borgaði sig svo sannarlega eins og ávalt á þeim mæta stað. En í öðrum fréttum er það helst að Kristján Cowell tók sig til og skrifaði bók. Bókin er ætluð þeim sem eru ekki jafn lánsamir og Cowell (sem er auðvitað viðbjóðslega ríkur) og nefnist bókin ,,1001 leið til þess að spara pening án þess að skerða lífsgæðin”. Ekki fannst Kristjáni við hæfi að skrifa bókina undir eigin nafni enda gæðingarnir þekktir fyrir allt annað en að spara. Hann ákvað að skrifa því bókina undir dulnefninu Kaufmann. Viðtökurnar stóðu ekki á sér og hefur bókin selst í milljónum eintaka um allan heim. Nú fyrst hefur Kristján viðurkennt að bókin sé eftir hann en óprúttnir blaðamenn voru farnir að hnýsast svo að hann taldi það best að koma í sviðsljósið. Bókin er talin vera eitt mesta þrekvirki bókmenntasögunnar og hefur Kristján (sem vill þó ekki láta kalla sig Kaufmann) verið orðaður við Pulitzer og jafnvel Nóbel-verðlaunin. Kvikmyndaútgáfa á bókinn er einnig væntanleg en það er Steven Spielberg sem leikstýrir myndinni sem er jafnframt fyrsta bíómyndin sem byggð er á sjálfshjálparbók. En þetta er ekki allt, sei, sei, nei. Kristján hefur nú opnað nýja verslunarkeðju sem ber nafnið Kaufmann. Verslunin selur fín föt handa gyðingum og öðrum þeim sem vilja spara.
Kveðja,Gæðingur
|
Pizza Pronto
Það var mikið um dýrðir í gæðingamáltíðinni föstudaginn 2.nóvember, enda ekki á hverjum degi
(heldur hverjum föstudegi) sem gæðingarnir fara út að snæða saman. Ákveðið var að fá sinfóníuhljómsveit Íslands til þess að spila óskalög fyrir piltana og voru hlutar úr 3.sinfoníu Beethovens og 4.sinfoníu Brahms spilaðir við góðar undirtektir viðstaddra. Eftir þessa skemmtilegu uppákoma skunduðu 3 matgæðingar niður á
Pizza Pronto, staðinn þar sem þetta allt byrjaði. Fyrir þá sem eru ekki alveg með á nótunum var Pronto fyrstu staðurinn sem Gæðingarnir snæddu saman á. Prins Ali sýndi enn og aftur að hann er algjör prins og kann enga mannasiði með því að beila konunglega á hinum þremur gæðingunum. Verður honum tímabundið vikið úr Matarfélaginu Matgæðingarnir
© og mun vinalegi rauðhausinn
Harry taka við stöðu Ellerts þangað til að hann lærir hvernig á að haga sér. Hinum piltunum var auðvitað brugðið en létu þeir þetta ekki á sig fá og pöntuðu sér mat og settust að snæðingi. Ekki bætti það skap strákanna að einhver beygla ruddist fram fyrir Eysa Eðal og var hann gráti næst að öryggisverðir staðarins hafi ekki tæklað hana á sekúndunni. En þá var komið að aðalmálinu, rúsínunni í pylsuendanum, aðalréttinum, matnum!
Bergur varð aldeilis hlessa þegar hann bragðaði á fyrstu sneiðinni ,,ojjj barasta, þetta er bara einhver massi með sósu, ullabjakk og svei svei!” sagði hann heldur ókátur. Hinir Matgæðingarnir tóku í sama streng og þótti þeim bragðið ekki tilkomumikið. Það er greinilegt að Pizza Pronto hefur ekkert þróast frá því gæðingarnir litu þangað inn síðast. Eins og sagt er í Pizza bransanum.
Engin framþróun = dauði!!!
Að sóa fleiri orðum í svo ómerkilega ferð væri skandall.
Stjörnugjöf:
Bergur: 1 stjarna
Eyþór: ½ stjarna
Kristján: 1½ stjarna
Harry: 1 stjarna
Ellert: Skróp í kladdann
Þess má geta að viku seinna var ekki enn búið að veita Ellerti inngöngu í Matarfélagið og fékk því vinalegi rauðhausinn Harry að koma með á American Stæl og þótti standa sig prýðisvel í fjarveru Ella. Nú standa samningaviðræður yfir um hvort Harry muni taka pláss Ella í Matgæðingunum til frambúðar. Kosning verður í kommentakerfinu hér á síðunni og eru allir hvattir til þess að kjósa. Kosningin er nafnlaus og eina sem þarf að gera er að skrifa annaðhvort HARRY eða ELLERT í reitinn þar sem stendur ,,comment?”. Munu úrstlit verða kynnt næsta föstudag. Lifið heil!
|
B5
Heil og sæl, aðdáendur Matgæðinganna. Vill undirritaður byrja á að biðjast afsökunar á seinaganginum með þessa grein en við sóttum staðinn B5 heim fyrir nokkrum vikum. Sökum anna hef ég ekki komist að því að birta umsögnina fyrr en nú en ég hef verið upptekinn með mínum manni Carl Sagan að vinna að fáránlega leynilegum verkefnum.
B5 er til húsa í Bankastræti 5 og dregur þaðan nafn sitt. Það var Jóhann Gíslí Jóhannesson, oft kallaður 5. gæðingurinn, sem mælti með því að þeir drengir skyldu bæta staðnum á listann sinn. Listi þessi er jafnan talinn til einna af undrum veraldar og verðmæti hans nemur gróflega verðmæti allrar olíu í heiminum. Er hann gerður úr skinni einhyrnings, skreyttur með dýrustu gimsteinum veraldar og ritað á hann með blóði úr engum öðrum en Mr. T.
Drátturinn sjálfur fór fram við húsfylli á Broadway. Basshunter og sérlegur velunnari Gæðinganna, Justin nokkur Timberlake sáu um upphitun. Kynnir kvöldsins var svo enginn annar en tengdasonur Íslands, hann Halim Al. Okkar maður Halim fór algerlega á kostum, reytti af sér brandara og rændi börnum eins og honum einum er lagið. Alger gimsteinn þar á ferð.
En að veitingastaðnum sjálfnum. Innandyra er mikið rými og innrétttingin mjög sérstök sem er hluti af þeim póstmóderníska stíl sem einkennir staðinn líkt og svo marga nýja veitingastaði. Samkvæmt heimildarmanni Gæðinganna snæða þar ýmsir frægir einstaklingar sem og valda-fígúrur úr þjóðfélaginu og má þar nefna Björk Guðmundsdóttur og Gunnlaugsson tvíburana.
Það ætlaði að ganga brösulega að panta matinn því gyðingnum Kristjáni Kaufmann sveið sárlega undan verðinu á matnum. Lét hann öllum illum látum þegar þjónninn neitaði að prútta við hann um verðið og hélt því fram að svona slæma meðferð hafi hann ekki fengið síðan í Auschwitz um árið. Síðan þá hefur Kristján aðeins verslað í Tiger.
Þótti Gæðingunum matseðillinn ekki alveg nógu fjölbreyttur og voru smáréttirnir á sama verði, og jafnvel dýrari, en aðalréttirnir. Það skemmdi eilítið fyrir því að það voru margir girnilegir smáréttir en hungraður Gæðingur verður seint sadddur að slíku og því var vaðið beint í aðal-réttina. Bergur, Eyþór og Kristján fengu sér allir hamborgara en Ellert gerðist frumlegur og skellti sér á kjúkling. Reyndar er svo langt síðan að við Gæðingarnir snæddum þarna að ég man lítið eftir matnum sjálfum, sem segir ef til vill meira um matinn heldur en minni undirritaðs. Þó rámar mig óljóst í að brauðið á hamborgurunum hafi verið öðruvísi en menn eiga að venjast og sömuleiðis að borgararnir hafi verið eilítið bragðdaufir. Semsagt, ekkert sérstaklega eftirminnileg máltíð.
Gæðingarnir gáfu:
Bergur Baquette: 2.5
Eysi eðall: 2.5
Kristján Cowell: 2.5
Prins Ali: 2
Skál!
|
Vegamót!
Ahhh,
Vegamót. Seinasta föstudag skunduðum við Gæðingarnir upp Laugarveginn og settum stefnu okkar á þennan stað sem ku vera sveittur skemmtistaður um helgar en býr yfir fallegum og elegantískum blæ þegar gengið er inn í hádeginu til málsverðar.
Með hinn gamalkunna gestadómara hinn hæstvirta Joe-Hannes með í för voru Gæðingarnir vongóðir og ætluðust til að kokkurinn á Vegamótum stæði sig betur í eldhúsinu heldur en starfsbróðir hans á Sólon, en eins og almúginn veit fóru Gæðingarnir þangað um daginn og munu aldrei stíga fæti þangað inn aftur. Nei, ekki einusinni til að djamma.
Fyrsta hindrunin var strax við innganginn en þegar Joe-Hannes ætlaði að ganga inn um dyrnar pípti viðvörunartæki og strax komu 2 föngulegir dyraverðir og meinuðu gestadómaranum um inngöngu. Ástæðan þar á bakvið var sú að hann átti að hafa verið á staðnum seinustu helgi ælandi og hrópandi fúkyrðum að öðrum gestum þangað til hann var handtekinn og barinn af lögreglunni fyrir utan. Aðspurður sagðist Joe-Hannes ekkert kannast við þessar lygasögur sem bornar voru að honum og kenndi móður sinni um glóðuraugað. Þar eð Gæðingarnir höfðu farið þessa ferð í leynd og enginn Carlos Lupez Romero til hjálpar, urðu þeir að bæta mælskubrögðum til að blíðka dyraverðina. Þá steig fram frummælandi Gæðinganna, Kristján Cowell, og notaði hann sína margfrægu tungu til að blíðka og róa dyraverðina niður. Án þess að leggja í frekari málalengingar gengu dyraverðirnir sáttir á brott og allir Gæðingarnir ásamt Joe-Hannes gestadómara fengu umsvifalaust að ganga til borðs.
Við inngöngu tekur á móti manni létt reykingarlykt sem stafar væntanlega af útúrtjúttaða djamminu sem á sér stað þarna um helgar og er vel hægt að fyrirgefa það. Gæðingarnir gengu til borðs í notalegu horni og gátu rætt um heimsmálin, fjárhaginn og framtíðaráætlanir Gæðinganna í ró og næði. Pantaðar voru tvær Cajun b.b.q. samlokur, Creola pizza og hamborgarar, en Eyþór eðall beitti fyrir sér nýrri tegund af pöntun, svokallaðri fjarpöntun, sem hann framkvæmdi á markvissan hátt frá klósettinu. Afgreiðslustúlkunni þótti mikið til hans koma og gaf öllum Gæðingunum ásamt Joe-Hannes Werthers Orginal í “le appatíser”. Eins og með flesta staði sem við Gæðingarnir skundum á finnst okkur maturinn vera heldur lengi á leiðinni miðað við að staðurinn er ávallt tæmdur fyrir komu okkar, en þá ætti ekki að vera neitt annað að gera í eldhúsinu. Til að gera langa sögu stutta samdi Bergur Baguette kvörtunarbréf til eiganda Vegamóta og var kokkurinn ásamt öllum starfsmönnum rekin seinna um daginn.
En þá að matnum! Cajun b.b.q. samlokurnar brögðuðust einkar vel og mætti þá segja að Vegamót hafi strax slegið Sólon út af laginu. Cowellinn var ekki nógu ánægður með pizzuna sína en Bergur Baguette og Joe-Hannes nutu sín ágætlega. Segja má að það sem við fengum að borða hafi verið “le pöntun”, ekkert kom óþægilega né þægilega á óvart en það er einmitt það sem við erum að reyna að fá út úr þessum heimsóknum.
Solid frammistaða hjá Vegamótum, en þegar á heildina er litið er hægt að fá betri mat annars staðar í bænum á þessu verði (sem dæmi má nefna að samlokan ein kostaði 1200kr. og lítil appelsín í gleri 300kr.) og því er ekkert verið að sprengja stjörnuskalann í þetta sinn!
Rétt að minnast á að í dag var hinn vikulegi dráttur Gæðinganna haldinn og hvorki meira né minna en Pizza Pronto kom upp á Casíóinn, sem þýðir að næsta föstudag endurmeta Gæðingarnir FYRSTA staðinn sem þeir heimsóttu í sögu félagsins. Búist er við metaðsókn og ef þú, sauðsvarti almúgi, vilt sjá glitta í Gæðinganna er bara að mæta nógu snemma á Ingólfstorg.
PS. Von er á Gæðingunum á Pronto um 11:10 um morguninn og er fólki því ráðlagt að byrja að týja sig á staðinn um 06:30.
PPS. Lögreglan vill benda á að til að minnka umferð og mannmergð verður miðbænum (frá Ingólfstorgi til Hlemms) lokað á milli 09:00-12:00. Já, öllum miðbænum.
PPPS. Siggi stormur mælir með vettlingum og dúnúlpum til að forðast kulda!
|
Kofi Tómasar frænda
Föstudaginn 13. október héldu Gæðingarnir áfram því "le honourable" markmiði að snæða á öllum helstu veitinga og skyndbitastöðum alheimsins. Þessi dagur var vissulega merkilegur fyrir þær sakir að þetta var föstudagurinn hinn þrettándi, Gæðingarnir létu ekki það á sig fá og fengu sérlegan aðstoðamann og prest Gæðinganna Hr. Djamm væta þá með vígðu vatni úr vatnshirslum Vatikansins.
Staður þessa dularfulla föstudags var Kofi Tómasar frænda . Kristján Cowell hafi farið mörgum fögrum orðum um gæði baguette sem þessi tiltekni staður hafði upp á að bjóða og jafnvel gekk hann svo langt í að segja að þau væru næstum jafn góð og baguette úr smiðju Gæðingsins Begga baguette. Bergur var nú frekar efins en lét til leiðast og mætti með hinum Gæðingunum þrátt fyrir Júdasartal Cowellsins. Kalt var í veðri og dúnuðu því Gæðingarnir sig einstaklega vel upp. Nýlega höfðu þeir fengið gjöf frá forseta Íslands, hálft tonn af æðadún, létu Gæðingarnir sérsauma á sig Gæðingaúlpur, eftirlíkingar af slíkum úlpum munu væntanlega detta inn í helstu tískuvöruverslanir hvað og hverju.
Gæðingarnir gengu þarna inn í þennan kofa fordómalausir, nema auðvitað Bergur baguette sem var helreiður yfir fyrrnefndum orðum Kristjáns Cowells. Ellert og Eyþór reyndu að hressa upp á andrúmsloftið með því að gera "human pyramid", vissulega var þessi pýramídi ekkert sérstaklega massamikill enda eru þeir drengir einstaklega "le fit". Kristjánbætti upp sín fyrri mistök með því að taka korterslanga mónólógu(einræðu) um ágæti Bergs baguette, tók nú Hr. Baguette hann í sátt og loksins voru Gæðingarnir tilbúnir að panta. Það var stór mínus þegar kom í ljós að Kofinn átti einungis kjúkling á eitt baguette og þar sem baguette eru sérsvið þessa staðar er það hreinlega bara til skammar. Gæðingarnir fengu sér allir baguette enda fátt annað að hafa á annars þessum huggulega stað. Andrúmsloftið var afslappað og fundu Gæðingarnir strax að þarna voru þeir komnir til að slaka á. Leið frekar langur tími þar til Gæðingarnir fengu málsverð sinn og þar með var kominn mínus númer tvö í hús.
Hins vegar smökkuðust þessi baguette einstaklega vel og voru allir Gæðingarnir mjög sáttir með snæðing sinn. Enginn gekk nú það langt að segja að þessu baguette væru nálægt gæðum Begga baguette en ansi góð voru þau.
Þjónustan á staðnum var ekki mjög góð og getur Tumi frændi bætt sig á mörgum sviðum. Til þess að le"sum up" þá var maturinn einstaklega bragðgóður en allt annað var hreinlega til skammar. Maturinn var þó virkilega góður og skorar staðurinn hátt miðað við þjónustu vegna þess.
Ellert 2,5 stjörnur
Eyþór 2,5 stjörnur
Beggi 2,5 stjörnur
Kristján 3,5 stjörnur
|