Til hamingju Ísland!
Í dag er hátíðisdagur mikill, en í gær (12. jan) datt fyrsti Gæðingurinn á þrítugsaldurinn og verður vegleg veisla haldin honum til höfuðs í kvöld.
Rétt fyrir miðnætti í gær var haldin mikil flugeldasýning, en björgunarsveitirnar styrktu Gæðinganna með öllum afgangsflugeldum frá áramótunum, en fjöldinn var það mikill að flugeldasýningin varði í 7 tíma, en aðdáendur Gæðinganna létu það ekki á sig fá, og þeir sem héldu út allar 7 stundirnar voru boðaðir í ókeypis kaffi og kleinur í félagsheimili Gæðinganna.
Hinn umtalaði Gæðingur er að sjálfsögðu Kristján Cowell, en Cowell viðskeytið er vísun í hina frægi American Idol þætti og þýðir einfaldlega að Kristján lætur ekki bjóða sér upp á neinn skít og hefur hann gengið út af ófáum veitingastöðum sem við höfum heimsótt. Hann er líka einn sá ötulasti við að halda áha
ngendum okkar við efnið með góðum greinum og fréttainnskotum, jafnt á Gæðingasíðuna sem og í Gæðingatíðindin, og þykir vera einn besti penni Norðurlanda.
Í kvöld verður Kristján hylltur af vinum og vandamönnum í pönkaðri afmælisveislu þar sem Gæðingarnir/hans bestu vinir, ásamt Joe-Hannes gestadómara, verða heiðursgestir og drukkið verður langt fram á nótt.
Kristján setur sig ávallt í spor annarra þjóða áður en hann borðar mat frá viðkomandi landi, enda tekur hann vinnu sína mjög alvarlega