Nú styttist í útgáfu fyrsta tölublaðs af Gæðingablaðinu!
Mikil leynd hefur ríkt yfir útgáfu Gæðingablaðsins, en Carlos Lupei Romero (borið fram Karló Lúpei Rómeró) talsmaður Gæðinganna staðfesti á blaðamannafundi fyrr í dag að blaðið kæmi út Miðvikudaginn 24.maí. Carlos sagði að blaðið yrði skýrt Skinfaxi í höfuðið á Skinfaxa frá Þóreyjarnúpi í Austur-Þingeyjarsýslu sem Gæðingarnir snæddu fyrir nokkrum dögum og þótti hinn besti matur.
Blaðið mun innihalda ýmiskonar skemmtiefni og fróðleik og stjörnugjöf Gæðinga-ársins.
Matgæðingarnir munu kynna blaðið á fimmtudaginn með miklum látum, á Austurvelli mun Kung Fú leika fyrir dansi, Guðjón Bergmann mun kenna Tantra og hoppukastali verður á svæðinu. Einnig munu Gæðingarnir snæða fyrir allra augum hjá góðvini sínum Guðmundi Griller sem rekur hið frábæra Grillhús við Tryggvagötu.