<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d17448089\x26blogName\x3dSamt%C3%B6k+s%C3%A6lkera+og+muna%C3%B0arseggja\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://matgaedingar.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://matgaedingar.blogspot.com/\x26vt\x3d7462415221719482900', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
Samtök sælkera og munaðarseggja
sunnudagur, janúar 29, 2006
Carnival du Gæðings


Það var á dimmum föstudegi í janúar, nánar tiltekið þann 6.janúar sem gæðingarnir héldu sína langþráðu árshátíð. Fréttirnar voru fljótar að berast um bæinn og strax í kringum sex voru aðdáendur byrjaðir að skjóta upp flugelda, klæða sig upp í álfabúninga og ganga í skrúðgöngum á gæðingabrennur. Veðrið olli því að tveir létust, vindurinn feykti einum inn í brennu en annar datt á rassinn á svelli og fékk svokallað rassgat, það lýsir sér með því að gat kemur á rassinn, allur lífsviljinn lekur út um gatið og manneskjan sviptir sig umsvifalaust lífi. Gæðingarnir vilja votta fjölskyldum þessara manna virðingu sína.En þegar leið á kvöldið og allir höfðu gleymt þessum voválegum atburðum hittust gæðingarnir í neðanjarðarbyrgi Ellerts á óþekktri eldfjallaeyju rétt fyrir utan landhelgi Íslands og snæddu saman dýrindis máltíð. Matseldinni var skipt á milli gæðinganna eftir sérsviði hvers og eins, Eysi Eðall sá um að velja heimsklassa vín, Beggi Baquette bjó til sín signature baquette, Krissi Cowell valdi algjört snilldar lambafillet með pöru og Prins Ali keypti kartöflur og lu salad. Einkaþjónar gæðinganna Gunni gír og Carlos Lupez Romero (borið fram “Karló Lúpei Rúmeró”) sem er einnig er einkabílstjóri þeirra stóðu sig með mikilli prýði. Gerði Carlos einnig alveg gífurlega góða og snilldarlega jarðaberjasósu til að hafa með ísnum sem var í eftirrétt. Þakka sælkerarnir Carlosi og Gunna “Grillmeister” innilega fyrir hjálpina. Byrjað var á því að hella uppá Kampavín og skála og svo bombað sér í hvern réttinn á eftir öðrum. Þegar gæðingarnir voru mettir lögðust þeir undir rós (sub rosa) gæddu sér á ferskum ávöxtum og ræddu heimsmálin, svo sem Íslamstrú, stöðu íslenskrar tungu og kynlíf dverghamstra. Þegar þessum háalvarlegu umræðum var lokið var spilað Catan. Enn eins og allir vita er það aðeins á færi þeirra sem eru með einstaklega háa greindarvísitölu að spila það og því fengu gæðingarnir Carlos í staðinn fyrir Ella Engil til að spila. Þess má geta að gæðingarnir Baquette, Eðall og Cowell eru allir meðlimir í MENSA samtökunum. Til að reyna að sanna gáfur sínar fyrir hinum gæðingunum þuldi Prins Ali upp allt leikritið Hamlet eftir Shakespeare á íslensku sem og á frummálinu. Svo þegar líða tók á kvöldið ákváðu Gæðingarnir að fara út á meðal almenningsins sem beið eftir þeim í nístandi kulda á Austurvelli. Sælkerarnir blönduðu geði við sauðsvartan almúgann langt fram eftir morgni og skemmtu þeir allir sér alveg prýðilega.

Allir gæðingarnir gáfu matnum fimm stjörnur og vildi Beggi Baquette jafnvel halda því fram að hann hefði blotnað í rassinum við að borða þennan dýrindismat og það einfaldlega hlýtur að teljast besta hrós sem sá mæti maður getur gefið.
Myndir af þessari mjög svo vel heppnuðu árshátíð má sjá hér (http://www.flickr.com/photos/11689976@N00/sets/1805354/with/84542951/ ) og einnig á hinu alþjóðlega gæðingasafni í New York borg.
 
|
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007