grænn kostur = góður kostur?
Dráttur dagsins var í meira lagi dramatískur. Dráttarstofa gæðinganna var skreytt með 1000 hvítum rósum og sjálfur
Guð Almáttugur fékk
þann mikla heiður að vera heiðursgestur gæðinganna. Matgæðingarnir mættu svo á fljúgandi hestvagni dregnum af átta hvítum áttfættum hestum. Strákarnir köstuðu karamellum og öðru góðgæti til sauðsvarts almúgans. Englakór himnaríkis söng jólalög og í síðasta laginu kom enginn annar enn Páll Rósinkranz og söng með þeim gamlan Jet Black Joe slagara, og hefur kallin greinilega engu gleymt.Anddrúmsloftið var magnþrungið þegar að ýtt var á Random-takkann á casíóinum margfræga. Talan sem kom upp var 1 og var þá ljóst að
grænn kostur yrði næsti áfangastaður gæðinganna.
Krissi Cowell var þó fljótur að benda á að Guð Almáttugur hefði greinilega beitt sínum völdum til að láta grænan kost koma upp enda er kallinn annálaður fyrir fjölkynngi ogsvo hefur heyrst að hann eigi í leynilegu ástarsambandi við Sollu á Grænum kosti. Gæðingarnir voru ekki á eitt sáttir og brutust út handalögmál og lauk þeim með þvíað
Beggi Baquette endaði með sprungna vör og himnafaðirinn fékk heiftarlegar blóðnasir.Ekki er enn komin niðurstaða í málið og mun það koma í ljós snemma í fyrramálið hvertferðinni verður heitið, því er fólki ráðlagt að fylgjast vel með fjölmiðlum í morgunsárið.Af augljósum ástæðum mun Guð ekki fá að vera gestadómari eins og til stóð.