<body><script type="text/javascript"> function setAttributeOnload(object, attribute, val) { if(window.addEventListener) { window.addEventListener('load', function(){ object[attribute] = val; }, false); } else { window.attachEvent('onload', function(){ object[attribute] = val; }); } } </script> <div id="navbar-iframe-container"></div> <script type="text/javascript" src="https://apis.google.com/js/platform.js"></script> <script type="text/javascript"> gapi.load("gapi.iframes:gapi.iframes.style.bubble", function() { if (gapi.iframes && gapi.iframes.getContext) { gapi.iframes.getContext().openChild({ url: 'https://www.blogger.com/navbar.g?targetBlogID\x3d17448089\x26blogName\x3dSamt%C3%B6k+s%C3%A6lkera+og+muna%C3%B0arseggja\x26publishMode\x3dPUBLISH_MODE_BLOGSPOT\x26navbarType\x3dBLUE\x26layoutType\x3dCLASSIC\x26searchRoot\x3dhttps://matgaedingar.blogspot.com/search\x26blogLocale\x3dis_IS\x26v\x3d2\x26homepageUrl\x3dhttp://matgaedingar.blogspot.com/\x26vt\x3d7462415221719482900', where: document.getElementById("navbar-iframe-container"), id: "navbar-iframe" }); } }); </script>
Samtök sælkera og munaðarseggja
föstudagur, nóvember 04, 2005

Já, í dag er miðvikudagur og það þýðir aðeins eitt , dráttur Matgæðingana. Athöfnin var einkar falleg í þetta skiptið. Við fengum nunnur til þess að kyrja heilög matarlög, slepptum tíu hvítum dúfum og fengum líka Mike Tyson til þess að skemmta skrílnum meðan við vorum að koma okkur fyrir. Mikið mannmergð var í stofu E í Gamla skóla. Þarna voru stjörnur eins og Logi Bergmann, Ingjaldsfíflið, Egill Skallagrímsson, Lindsay Lohan og fleiri. Skemmti fólkið sér gríðarlega vel yfir kómedíu Tyson, talaði hann mest um hvernig mannakjöt smakkaðist og hversu gott það væri í samanburði við þetta venjulega, það er að segja lambakjöt, svínakjöt og nautakjöt. Sagði hann að mannakjötið væri örlítið beiskara og seigara en þetta venjulega kjöt sem “venjulegi Jói” leggur sér til munns. Auk þess vakti hann mikla kátínu með ýmsum sódómískum bröndurum um föðurbróður sinn Kevin Tyson, sem er víst alveg helöfugur.

Ellert matgæðingur tók það að sér það gríðarlega erfiða verkefni að “randoma” vasareikninn. Strákurinn stóð sig með prýði, þrátt fyrir örlitla hnökra í byrjun þegar hann kunni ekki að setja “randomið” á fx-inn. Var strákurinn flengdur fyrir þetta og mun hann örugglega muna hvernig “randomið” virkar næst.

Niðurstaðan var sem sagt Hornið, hef nú mínar efasemdir, við sjáum til.


beggi matgæðingur
 
|
október 2005
nóvember 2005
desember 2005
janúar 2006
febrúar 2006
mars 2006
apríl 2006
maí 2006
ágúst 2006
september 2006
október 2006
nóvember 2006
desember 2006
janúar 2007